Hvað er ríki Guðs?
Heldurðu að það sé ...
-
eitthvað innra með okkur?
-
myndmál?
-
stjórn á himnum?
HVAÐ SEGIR BIBLÍAN?
,Guð himnanna mun magna upp ríki sem aldrei mun hrynja.‘ – Daníel 2:44, Biblían 2010.
„Sonur er oss gefinn. Á hans herðum skal höfðingjadómurinn hvíla.“ – Jesaja 9:5.
HVAÐ ÞÝÐIR ÞAÐ FYRIR ÞIG?
-
Að búa við réttláta stjórn sem getur gert þér gott. – Jesaja 48:17, 18.
-
Von um fullkomna heilsu og hamingju í nýjum heimi framtíðar. – Opinberunarbókin 21:3, 4.
ER HÆGT AÐ TREYSTA ÞVÍ SEM BIBLÍAN SEGIR?
Já, og ástæðurnar eru að minnsta kosti tvær:
-
Jesús sýndi hverju ríki Guðs kemur til leiðar. Jesús kenndi fylgjendum sínum að biðja um að ríki Guðs kæmi og að vilji hans yrði gerður á jörðinni. (Matteus 6:9, 10) Hann lýsti líka hvernig bæninni yrði svarað.
Þegar Jesús var á jörðinni gaf hann svöngum að borða, læknaði sjúka og gaf látnum lífið á ný. (Matteus 15:29–38; Jóhannes 11:38–44) Jesús er tilvonandi stjórnandi ríkis Guðs og gaf mönnunum forsmekk af því sem hann gerir fyrir þegna sína í framtíðinni. – Opinberunarbókin 11:15.
-
Ástandið í heiminum ber því vitni að ríki Guðs komi bráðlega. Jesús spáði að rétt áður en ríki Guðs kæmi á friði á jörð myndu stríð, hungursneyðir og jarðskjálftar þjaka mannkynið. – Matteus 24:3, 7.
Þetta ástand blasir við okkur núna. Við getum því verið viss um að ríki Guðs bindi enda á alla slíka erfiðleika innan skamms.
TIL UMHUGSUNAR
Hvernig verður lífið þegar ríki Guðs stjórnar?
Svar Biblíunnar er að finna í SÁLMI 37:29 og JESAJA 65:21–23.