Öll sköpunin lofi Jehóva!
Söngur 5
Öll sköpunin lofi Jehóva!
1. Allt í heimi alvald lofi,
eilíft blessi nafnið hátt.
Daglangt hollir, helgir englar
hefja raust um Drottins mátt.
2. Sólin, tunglið, stjörnur
stoltar stafa hvað í Guði býr.
Lögum hans þau lúta ávallt,
látlaus vitnisburður skýr.
3. Upp frá jörðu einnig heyrast
„aðrir sauðir“ tigna hann.
Fagnandi á fótskör Drottins
flytja lof um skaparann.
4. Nú hann lofi mikill múgur,
musteri Guðs streymi í.
Hann verðskuldar hollustuna,
hyllum Drottin okkar því.