Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Gleði og ávextir þjónustunnar

Gleði og ávextir þjónustunnar

Söngur 72

Gleði og ávextir þjónustunnar

(Matteus 5:12)

1. Er við þjónum gæskuríkum Guði

gleði öðlumst við og sannan frið.

Öllum þjóðum flytjum góðar fréttir,

fögnuð sem með öðrum deilum við.

Þeim sem gefa veitti Jesús vissu:

„Væn mun ykkur gleðin falla’ í skaut.“

Er til nokkur blessun öðrum betri

en að beina mönnum inn á lífsins braut?

2. Þegar fólk við hittum hús úr húsi

háði’ og spotti stundum mætum við.

Samt við Guði stöðugt þjónum staðföst,

stöndum ávallt ráðvönd við hans hlið.

Mæti okkur ofsóknir og illska

upphafning nafn Jehóva mun fá.

Jesús sagði: „Þjónn Guðs fagni þrautum

spámenn þessa útreið áður máttu sjá.“

3. Helga starfið gefur okkur gleði,

göngum við þann stíg er Jesús tróð.

Hefndardag Guðs flytjum vondu fólki.

Fáum Guði heiður sem hans þjóð.

Öllum berum von sem þrá og vilja

veröld sem er laus við synd og kíf.

Einatt gefur ánægju og gleði

þessi yndislega von um eilíft líf.