Stríðsmenn Guðs sækja fram
Söngur 39
Stríðsmenn Guðs sækja fram
1. Fram stefna stríðsmenn Drottins
með stilltan kraft hvers manns.
Til heiðurs Guði hæsta
þeir heiðra nafnið hans.
Hinn seki dreki Satan
Guðs sveit vill ráðast á.
Í sigurhöndum sínum
Guð sjálfur verndar þá.
2. Já, nú er Drottins dagur,
þá dirfsku þarf og trú.
Mæl óttalaust fram orð Guðs,
sýn æðruleysi nú.
Með styrk Guðs sonur stjórnar,
hann styður Drottin sinn.
Til hildar hann nú leggur,
ljá honum styrkinn þinn.
3. Með Guði fram við göngum,
hann glæstan sigur ber,
þá fær hann uppreisn æru
svo áköf þjónum hér.
Er sannleiksorðið sigrar,
Guð sigurlaun mun þá
í hendur lýðsins leggja
sem lög hans treystir á.