„Ég hef kunngert nafn þitt“
„Ég hef kunngert nafn þitt“
„Ég hef opinberað nafn þitt þeim mönnum sem þú gafst mér úr heiminum … Ég hef kunngert þeim nafn þitt og mun kunngera það.“ – JÓHANNES 17:6, 26.
Hvað þýðir það? Jesús kunngerði nafn Guðs með því að nota það í boðuninni. Þegar hann las úr Ritningunni, eins og hann gerði oft, hefur hann notað eiginnafn Guðs. (Lúkas 4:16–21) Hann kenndi fylgjendum sínum að biðja: „Faðir, við biðjum að nafn þitt helgist.“ – Lúkas 11:2.
Hvernig fylgdu kristnir menn á fyrstu öld þessu fordæmi? Pétur postuli sagði öldungunum í Jerúsalem að Guð hefði valið úr hópi þjóðanna „fólk til að bera nafn sitt“. (Postulasagan 15:14) Postularnir boðuðu ásamt öðrum að ,allir sem ákalla nafn Jehóva bjargist‘. (Postulasagan 2:21; Rómverjabréfið 10:13) Þeir notuðu einnig nafn Guðs í því sem þeir skrifuðu. Tosefta er safn laga sem Gyðingar luku við að skrifa árið 300. Þar segir um það hvernig andstæðingar kristninnar brenndu rit kristinna manna: „Bókum guðspjallamannanna og bókum minim [talið að átt sé við kristna Gyðinga] bjarga þeir ekki frá eldi. Þær eru látnar brenna þar sem þær eru … þær og vísanir í nafn Guðs sem í þeim eru.“
Hverjir fylgja þessu fordæmi nú á dögum? Í formála biblíuþýðingarinnar Revised Standard Version sem er gefin út af Alríkisráði kirkna Krists í Ameríku segir: „Að nefna hinn eina sanna Guð ákveðnu eiginnafni, rétt eins og til væru aðrir guðir sem þyrfti að aðgreina hann frá var hætt í gyðingdómi fyrir daga kristninnar og er algerlega óviðeigandi í almennri trú kristinnar kirkju.“ Því var nafni Guðs skipt út fyrir titilinn „DROTTINN“. Nýlega kom tilskipun frá Vatíkaninu til biskupa þess: „Hvorki má nota né segja nafn Guðs í formi fjórstafanafnsins JHVH * í söng og bæn.“
Hverjir nota og kunngera eiginnafn Guðs nú á dögum? Þegar Sergey var unglingur í Kirgistan sá hann kvikmynd þar sem kom fram að nafn Guðs væri Jehóva. Í um áratug heyrði hann ekki minnst á nafn Guðs aftur. Síðar, þegar Sergey hafði flust til Bandaríkjanna, heimsóttu tveir vottar Jehóva hann og sýndu honum nafn Guðs í Biblíunni. Sergey var himinlifandi að finna hóp fólks sem notaði nafn Jehóva. Það er athyglisvert að í orðabókinni Webster’s Third New International Dictionary er sagt að nafnið Jehóva standi fyrir „æðsta guðdóminn en vottar Jehóva viðurkenna hann sem slíkan og tilbiðja hann einan“.
[Neðanmáls]
^ gr. 5 Á íslensku er nafn Guðs venjulega umritað „Jehóva“.