11. Hvers vegna eru svona miklar þjáningar?
1 JEHÓVA VELDUR EKKI NEINUM ÞJÁNINGUM
„Fjarri fer því að Guð breyti ranglega og Hinn almáttki aðhafist illt.“ – Jobsbók 34:10.
Hvers vegna eru svona miklar þjáningar í heiminum?
-
Satan djöfullinn stjórnar heiminum.
-
Menn valda öðru fólki þjáningum.
-
Stundum þjáist fólk af því að það er á röngum stað á röngum tíma.
-
Jehóva elskar fólk mjög mikið. Það tekur hann mjög sárt að sjá það þjást.
2 SATAN VÉFENGDI RÉTT JEHÓVA TIL AÐ STJÓRNA
,Guð veit að augu ykkar ljúkast upp og þið verðið eins og Guð og skynjið gott og illt.‘ – 1. Mósebók 3:5.
Hvers vegna hunsaði Jehóva ekki ögrun Satans?
-
Satan sakaði Guð um að vera vondur stjórnandi. Satan vildi að menn tryðu því að þeir hefðu rétt til að ákveða sjálfir hvað væri rétt og hvað væri rangt.
-
Satan ögraði Jehóva frammi fyrir milljónum engla.
3 ÖGRUN SATANS MISHEPPNAÐIST
„Enginn maður ræður för sinni, enginn stýrir skrefum sínum á göngunni.“ – Jeremía 10:23.
Hvers vegna hafa menn þurft að þola þjáningar svona lengi?
-
Menn hafa reynt margs konar stjórnarfar en geta ekki stjórnað farsællega án Guðs.
-
Jehóva er þolinmóður og hefur gefið okkur tíma til að kynnast sér og velja sig sem stjórnanda.
-
Jehóva á eftir að nota Jesú til að bæta fyrir allan þann skaða sem Satan hefur valdið.
4 NOTAÐU FRJÁLSA VILJANN TIL AÐ ÞJÓNA JEHÓVA
„Öðlastu visku, sonur minn ... svo að ég geti svarað þeim orði sem smána mig.“ – Orðskviðirnir 27:11.
Hvers vegna þvingar Jehóva okkur ekki til að þjóna sér?
-
Dýr hegða sér að mestu leyti í samræmi við eðlishvöt en Jehóva gaf okkur frjálsan vilja. Við getum valið hvort við viljum þjóna honum eða ekki.
-
Jehóva vill að við þjónum honum vegna þess að við elskum hann.