12. Hvernig geturðu orðið vinur Guðs?
1 VINIR JEHÓVA HLÝÐA HONUM
„Hlýðið boðum mínum, þá verð ég Guð yðar og þér verðið lýður minn.“ – Jeremía 7:23.
Er mögulegt að vera vinur Guðs?
1. Mósebók 22:18; Jakobsbréfið 2:23
Abraham varð vinur Guðs vegna þess að hann hlustaði á Guð og trúði á hann.
-
Jehóva hjálpar þeim sem eru hlýðnir.
-
Jehóva gefur vinum sínum næman skilning.
-
Jehóva styður vini sína.
2 JOB VAR TRÚR VINUR GUÐS
„Þrátt fyrir allt þetta syndgaði Job ekki og álasaði Guði ekki.“ – Jobsbók 1:22.
Hvernig réðst Satan á Job og hvernig brást Job við?
-
Satan hélt því fram að Job væri eigingjarn og elskaði ekki Guð.
-
Jehóva leyfði Satan að taka allt frá Job. Satan sló jafnvel Job hræðilegum sjúkdómi.
-
Job vissi ekki hvers vegna hann þurfti að þjást svona mikið en hann hélt áfram að vera trúr.
3 SATAN REYNIR AÐ SNÚA ÞÉR FRÁ JEHÓVA
„Menn láta allt sem þeir eiga fyrir líf sitt.“ – Jobsbók 2:4.
Hvernig reynir Satan að eyðileggja vináttu okkar við Jehóva?
-
Satan reynir að plata okkur til að óhlýðnast Jehóva.
-
Hann reynir að fá okkur til að finnast við ekki nógu góð til að þjóna Jehóva.
-
Satan ofsækir okkur.
-
Veldu að hlýða Jehóva og vera honum trúr vinur. Það sannar að Satan er lygari.
4 VIÐ HLÝÐUM JEHÓVA AF ÞVÍ AÐ VIÐ ELSKUM HANN
„Elskan til Guðs birtist í að við höldum boðorð hans. Og boðorð hans eru ekki þung.“ – 1. Jóhannesarbréf 5:3.
Hvernig geturðu orðið vinur Jehóva?
-
Sýndu að þú elskir Guð. Það hjálpar þér að sýna hlýðni.
-
Það er þér alltaf til góðs að hlýða Jehóva.
-
Þú þarft aldrei að óttast að Jehóva biðji þig um að gera eitthvað sem þú getur ekki gert.
-
Gerðu það sem er rétt og þá gefur Jehóva þér þann styrk sem þú þarfnast.