6. HLUTI
Hvað lærum við af Nóaflóðinu?
Guð eyddi hinum illu en bjargaði Nóa og fjölskyldu hans. 1. Mósebók 7:11, 12, 23
Það rigndi í 40 daga og 40 nætur. Vatnið huldi alla jörðina. Þeir sem voru illir dóu.
Englarnir, sem gerðu uppreisn, yfirgáfu mannslíkamann og urðu illir andar.
Þeir sem voru í örkinni lifðu af flóðið. Nói og fjölskylda hans dóu að lokum en Guð á eftir að reisa þau aftur til lífs. Þá geta þau lifað að eilífu.
Matteus 24:37-39
Guð mun aftur eyða hinum illu og bjarga hinum góðu.Satan og illu andarnir halda áfram að blekkja fólk.
Jehóva elskar mennina en margir hafna leiðsögn hans alveg eins og á dögum Nóa. Bráðlega eyðir Jehóva öllum illum mönnum. – 2. Pétursbréf 2:5, 6.
Vottar Jehóva líkjast Nóa. Þeir hlusta á Guð og fara eftir því sem hann segir.