ÞJÁLFUNARLIÐUR 14
Aðalatriðin dregin fram
Hebreabréfið 8:1
YFIRLIT: Hjálpaðu áheyrendum þínum að fylgjast með efninu og sýndu fram á hvernig hvert aðalatriði tengist markmiði og stefi ræðunnar.
HVERNIG FER MAÐUR AÐ?
-
Settu þér markmið. Íhugaðu hvort ræðan eigi að upplýsa, sannfæra eða hvetja áheyrendur. Síðan skaltu vinna úr efninu í samræmi við það. Vertu viss um að aðalatriðin hjálpi þér að ná markmiðinu sem þú settir þér.
-
Leggðu áherslu á ræðustefið. Nefndu stefið út í gegnum ræðuna með því að endurtaka lykilorðin í stefinu eða nota samheiti.
-
Hafðu aðalatriðin skýr og einföld. Veldu eingöngu aðalatriði sem tengjast stefinu og þú getur útskýrt vel á þeim tíma sem þú hefur til umráða. Ekki hafa of mörg aðalatriði. Taktu skýrt fram hvert aðalatriði fyrir sig, taktu síðan málhvíld og snúðu þér að næsta aðalatriði.