ÞJÁLFUNARLIÐUR 9
Sýnigögn
1. Mósebók 15:5
YFIRLIT: Notaðu sýnigögn til að lífga upp á kennsluna og draga fram mikilvæg atriði.
HVERNIG FER MAÐUR AÐ?
-
Veldu sýnigögn sem gera kennsluna áhrifaríkari. Notaðu myndir, skýringateikningar, landakort, tímalínur eða annars konar sýnigögn til að leggja áherslu á mikilvæg atriði, ekki smáatriði. Hjálpaðu áheyrendunum að muna ekki bara eftir sýnigögnunum heldur því sem verið er að kenna.
-
Fullvissaðu þig um að áheyrendur sjái sýnigögnin.