6. HLUTI
Stuðningur okkar við ríki Guðs – að byggja samkomuhús og veita neyðaraðstoð
ÞÚ GENGUR inn í ríkissalinn en hann er næstum óþekkjanlegur. Þú hefur alltaf verið stoltur af þessu húsi. Þú átt kannski góðar minningar frá þeim tíma þegar þú lagðir hönd á plóginn við að byggja það fyrir mörgum árum. En þú ert enn stoltari núna því að það er búið að breyta ríkissalnum tímabundið í miðstöð fyrir neyðaraðstoð. Mikið óveður er nýgengið yfir með tilheyrandi flóðum, og deildarnefndin gerði tafarlaust ráðstafanir til að sjá þeim sem urðu illa úti af völdum hamfaranna fyrir mat, fatnaði, drykkjarvatni og öðrum nauðsynjum. Hjálpargögnunum, sem fólk hefur gefið, er snyrtilega komið fyrir. Bræður og systur standa í röð til að fá það sem þau vantar, og þú sérð marga þurrka gleðitárin af augum sér.
Jesús sagði að fylgjendur sínir myndu öðru fremur þekkjast á því að þeir elskuðu hver annan. (Jóh. 13:34, 35) Í þessum hluta könnum við hvernig kristinn kærleikur birtist í byggingarframkvæmdum og hjálparstarfi sem Vottar Jehóva standa fyrir. Þessi kærleikur er skýrt merki þess að við störfum undir stjórn ríkisins sem Jesús er konungur yfir.
Í ÞESSUM HLUTA
19. KAFLI
Byggingarstörf sem eru Jehóva til heiðurs
Ríkissalir og mótshallir eru Guði til heiðurs en það er annað sem er enn verðmætara í augum hans.
20. KAFLI
Hjálparstarf sem er Jehóva til heiðurs
Hvernig vitum við að hjálparstarf er þáttur í heilagri þjónustu okkar við Jehóva?