Síðari Konungabók 24:1–20

  • Uppreisn Jójakíms; hann deyr (1–7)

  • Jójakín Júdakonungur (8, 9)

  • Fyrri herleiðingin til Babýlonar (10–17)

  • Sedekía Júdakonungur; uppreisn hans (18–20)

24  Á dögum Jójakíms réðst Nebúkadnesar+ konungur Babýlonar inn í landið og Jójakím laut valdi hans í þrjú ár. En síðan gerði hann uppreisn gegn honum.  Þá sendi Jehóva ránsflokka Kaldea,+ Sýrlendinga, Móabíta og Ammóníta gegn Jójakím. Jehóva sendi þá til að eyða Júda eins og hann hafði sagt+ fyrir milligöngu þjóna sinna, spámannanna.  Já, þetta kom fyrir Júda að fyrirskipun Jehóva. Hann vildi reka Júdamenn úr augsýn sinni+ vegna allra þeirra synda sem Manasse hafði drýgt+  og vegna þess saklausa blóðs sem hann hafði úthellt.+ Hann fyllti Jerúsalem af saklausu blóði og Jehóva vildi ekki fyrirgefa það.+  Það sem er ósagt af sögu Jójakíms og öllu sem hann gerði er skráð í bókinni um sögu Júdakonunga.+  Jójakím var lagður til hvíldar hjá forfeðrum sínum+ og Jójakín sonur hans varð konungur eftir hann.  Egyptalandskonungur hætti sér aldrei aftur í herferð úr landi sínu því að konungur Babýlonar hafði lagt undir sig allt landsvæðið sem hafði áður tilheyrt honum,+ allt frá Egyptalandsá*+ að Efratfljóti.+  Jójakín+ var 18 ára þegar hann varð konungur og hann ríkti í þrjá mánuði í Jerúsalem.+ Móðir hans hét Nehústa og var dóttir Elnatans frá Jerúsalem.  Hann gerði það sem var illt í augum Jehóva, alveg eins og faðir hans. 10  Um þetta leyti fóru menn Nebúkadnesars Babýlonarkonungs í herferð til Jerúsalem og settust um borgina.+ 11  Nebúkadnesar Babýlonarkonungur kom til borgarinnar meðan menn hans sátu um hana. 12  Jójakín Júdakonungur gekk þá út til Babýlonarkonungs+ ásamt móður sinni, þjónum sínum, höfðingjum* og hirðmönnum+ og Babýlonarkonungur tók hann til fanga. Þetta var á áttunda stjórnarári hans.+ 13  Hann flutti alla fjársjóðina úr húsi Jehóva og konungshöllinni+ og braut öll gulláhöldin sem Salómon Ísraelskonungur hafði gert fyrir musteri Jehóva.+ Allt þetta gerðist eins og Jehóva hafði sagt. 14  Hann flutti alla íbúa Jerúsalem í útlegð, alla höfðingjana,+ alla stríðskappana og alla handverksmenn og málmsmiði,*+ alls 10.000 manns. Enginn var skilinn eftir nema fátækustu íbúar landsins.+ 15  Hann flutti Jójakín+ í útlegð til Babýlonar+ ásamt konungsmóðurinni, eiginkonum konungs, hirðmönnum hans og merkustu mönnum landsins. Hann flutti þau í útlegð frá Jerúsalem til Babýlonar. 16  Konungur Babýlonar flutti einnig alla hermennina, 7.000 talsins, í útlegð til Babýlonar, og auk þess 1.000 handverksmenn og málmsmiði.* Þeir voru allir miklir kappar og þjálfaðir í hernaði. 17  Konungur Babýlonar gerði Mattanja föðurbróður Jójakíns+ að konungi í hans stað og breytti nafni hans í Sedekía.+ 18  Sedekía var 21 árs þegar hann varð konungur og hann ríkti í 11 ár í Jerúsalem. Móðir hans hét Hamútal+ og var dóttir Jeremía frá Líbna. 19  Hann gerði það sem var illt í augum Jehóva, alveg eins og Jójakím.+ 20  Það sem gerðist í Jerúsalem og Júda vakti reiði Jehóva og að lokum rak hann íbúana burt úr augsýn sinni.+ Sedekía gerði uppreisn gegn Babýlonarkonungi.+

Neðanmáls

Eða „Egyptalandsflóðdal“. Sjá orðaskýringar, „flóðdalur“.
Eða „prinsum“.
Eða hugsanl. „þá sem reisa varnarvirki“.
Eða hugsanl. „þá sem reisa varnarvirki“.