Önnur Mósebók 27:1–21

  • Brennifórnaraltarið (1–8)

  • Forgarðurinn (9–19)

  • Olía fyrir ljósastikuna (20, 21)

27  Þú skalt gera altari úr akasíuviði.+ Það á að vera fimm álnir* á lengd og fimm álnir á breidd. Altarið á að vera ferningslaga og þrjár álnir á hæð.+  Gerðu horn+ sem standa upp af fjórum hornum altarisins og eru hluti af því. Leggðu altarið kopar.+  Gerðu fötur til að fjarlægja öskuna,* ásamt skóflum, skálum, göfflum og eldpönnum. Öll áhöld altarisins eiga að vera úr kopar.+  Gerðu grind úr kopar fyrir altarið. Hún á að vera eins og net, og festu fjóra koparhringi við fjögur horn netsins.  Láttu netið sitja fyrir neðan brún altarisins og ná niður í mitt altarið.  Gerðu stangir úr akasíuviði fyrir altarið og leggðu þær kopar.  Stöngunum er rennt í hringina þannig að þær séu báðum megin á altarinu þegar það er borið.+  Altarið á að vera eins og kassi úr borðum, holt að innan. Láttu gera það alveg eins og þér hefur verið sýnt á þessu fjalli.+  Gerðu forgarð+ kringum tjaldbúðina. Á suðurhlið hans eiga að vera tjöld úr fínu tvinnuðu líni, 100 álnir á lengd.+ 10  Þar eiga að vera 20 súlur með 20 undirstöðuplötum úr kopar. Krókarnir á súlunum og festingar* þeirra eru úr silfri. 11  Tjöldin á norðurhliðinni eiga einnig að vera 100 álnir á lengd með 20 súlum og 20 undirstöðuplötum úr kopar, ásamt silfurkrókum og festingum* fyrir súlurnar. 12  Vestan megin eiga að vera 50 álna löng tjöld með tíu súlum og tíu undirstöðuplötum. 13  Forgarðurinn á að vera 50 álnir á breidd að austanverðu, móti sólarupprásinni. 14  Tjöldin eiga að vera 15 álnir á lengd öðrum megin með þrem súlum og þrem undirstöðuplötum.+ 15  Og hinum megin eiga tjöldin líka að vera 15 álnir á lengd með þrem súlum og þrem undirstöðuplötum. 16  Fyrir inngangi forgarðsins á að vera 20 álna breitt forhengi ofið úr bláu garni, purpuralitri ull, skarlatsrauðu garni og fínu tvinnuðu líni,+ með fjórum súlum og fjórum undirstöðuplötum fyrir þær.+ 17  Allar súlurnar kringum forgarðinn eiga að vera með festingum og krókum úr silfri en undirstöðuplöturnar eiga að vera úr kopar.+ 18  Forgarðurinn á að vera 100 álnir á lengd+ og 50 álnir á breidd og tjöldin kringum hann 5 álnir á hæð, gerð úr fínu tvinnuðu líni. Undirstöðuplöturnar eiga að vera úr kopar. 19  Öll áhöld og allur búnaður sem er notaður í þjónustunni við tjaldbúðina á að vera úr kopar, svo og tjaldhælar hennar og allir tjaldhælar forgarðsins.+ 20  Segðu Ísraelsmönnum að færa þér hreina olíu úr steyttum ólívum til lýsingar svo að það logi stöðugt á lömpunum.+ 21  Aron og synir hans eiga að sjá til þess að það logi frá kvöldi til morguns frammi fyrir Jehóva á lömpunum+ sem eru í samfundatjaldinu fyrir utan fortjaldið við örk vitnisburðarins.+ Þetta er varanlegt ákvæði sem Ísraelsmenn eiga að halda kynslóð eftir kynslóð.+

Neðanmáls

Alin jafngilti 44,5 cm. Sjá viðauka B14.
Eða „fituöskuna“, það er, ösku blandaða fitu fórnardýranna.
Eða „hringir“ til festingar.
Eða „hringjum“ til festingar.