Fjórða Mósebók 23:1–30

  • Bíleam flytur ljóðrænan boðskap í fyrsta sinn (1–12)

  • Bíleam flytur ljóðrænan boðskap í annað sinn (13–30)

23  Þá sagði Bíleam við Balak: „Reistu hér sjö ölturu+ og hafðu til sjö naut og sjö hrúta handa mér.“  Balak gerði umsvifalaust eins og Bíleam bað hann um. Og Balak og Bíleam fórnuðu nauti og hrút á hverju altari.+  Bíleam sagði síðan við Balak: „Bíddu hér hjá brennifórn þinni meðan ég skrepp frá. Kannski talar Jehóva við mig. Ég skal segja þér allt sem hann opinberar mér.“ Hann gekk síðan upp á gróðurlausa hæð.  Guð birtist Bíleam+ og Bíleam sagði við hann: „Ég setti upp sjö ölturu í röðum og fórnaði nauti og hrút á hverju þeirra.“  Jehóva lagði þá Bíleam orð í munn+ og sagði síðan við hann: „Farðu aftur til Balaks og segðu honum þetta.“  Hann sneri þá aftur og sá að Balak og allir höfðingjar Móabs stóðu hjá brennifórninni.  Bíleam flutti nú þennan ljóðræna boðskap:+ „Balak Móabskonungur sótti mig til Aram,+til fjallanna í austri: ‚Komdu og bölvaðu Jakobi fyrir mig,já, komdu og fordæmdu Ísrael.‘+   Hvernig gæti ég bölvað þeim sem Guð hefur ekki bölvað? Og hvernig gæti ég fordæmt þá sem Jehóva hefur ekki fordæmt?+   Ég sé þá ofan af klettunumog ég sé þá af hæðunum. Þjóð sem býr út af fyrir sig,+hún telur sig ekki með hinum þjóðunum.+ 10  Hver getur talið rykkorn Jakobs+eða kastað tölu á fjórðung Ísraels? Láttu mig* deyja dauða hinna ráðvönduog láttu endalok mín verða eins og þeirra.“ 11  Þá sagði Balak við Bíleam: „Hvað hefurðu gert mér? Ég sótti þig til að leggja bölvun á óvini mína en þú gerir ekki annað en að blessa þá.“+ 12  Hann svaraði: „Á ég ekki að segja það sem Jehóva leggur mér í munn?“+ 13  Balak sagði: „Komdu með mér á annan stað þar sem þú getur séð þá. Þú munt ekki sjá þá alla heldur aðeins hluta þeirra. Þaðan geturðu bölvað þeim fyrir mig.“+ 14  Hann fór síðan með Bíleam upp á Sófímvöll á Pisgatindi,+ reisti sjö ölturu og fórnaði nauti og hrút á hverju þeirra.+ 15  Bíleam sagði nú við Balak: „Bíddu hérna hjá brennifórn þinni meðan ég fer þangað og tala við Guð.“ 16  Jehóva birtist Bíleam, lagði honum orð í munn og sagði síðan við hann:+ „Farðu aftur til Balaks og segðu honum þetta.“ 17  Hann fór þá til hans og sá að hann beið hjá brennifórninni og höfðingjar Móabs voru hjá honum. Balak spurði hann: „Hvað sagði Jehóva?“ 18  Bíleam flutti þá þennan ljóðræna boðskap:+ „Stattu upp, Balak, og hlustaðu,hlýddu á mig, sonur Sippórs. 19  Guð er ekki maður sem lýgur+eða mannssonur sem skiptir um skoðun.*+ Gerir hann ekki það sem hann segir? Framkvæmir hann ekki það sem hann talar um?+ 20  Það var hlutverk mitt að blessa. Nú hefur hann blessað+ og ég get ekki breytt því.+ 21  Hann umber engin dulræn öfl gegn Jakobiog hann leyfir ekki að neitt illt komi yfir Ísrael. Jehóva Guð þeirra er með þeim+og hann er hylltur sem konungur meðal þeirra. 22  Guð leiðir þá út úr Egyptalandi.+ Hann er þeim eins og horn villinautsins.+ 23  Enginn illur fyrirboði er til um Jakob+og engin spásögn gegn Ísrael.+ Nú má segja um Jakob og Ísrael: ‚Sjáið hvað Guð hefur gert!‘ 24  Hér er þjóð sem rís upp eins og ljón,eins og ljónið rís hún á fætur.+ Það leggst ekki fyrr en það étur bráð sínaog drekkur blóð hinna föllnu.“ 25  Balak sagði þá við Bíleam: „Þó að þú getir ekki bölvað honum þarftu að minnsta kosti ekki að blessa hann.“ 26  „Sagði ég þér ekki að ég myndi gera allt sem Jehóva segði mér?“ svaraði Bíleam.+ 27  Balak sagði við Bíleam: „Komdu með mér á annan stað. Kannski þykir hinum sanna Guði rétt að þú bölvir þjóðinni fyrir mig þar.“+ 28  Balak fór síðan með Bíleam upp á Peórtind þar sem sést yfir Jesímon.*+ 29  Bíleam sagði við Balak: „Reistu sjö ölturu hér og hafðu til handa mér sjö naut og sjö hrúta.“+ 30  Balak gerði þá eins og Bíleam bað hann um og fórnaði nauti og hrút á hverju altari.

Neðanmáls

Eða „sál mína“.
Eða „sem iðrast“.
Eða hugsanl. „eyðimörkina; óbyggðirnar“.