Fimmta Mósebók 34:1–12

  • Jehóva sýnir Móse landið (1–4)

  • Móse deyr (5–12)

34  Móse gekk síðan frá eyðisléttum Móabs á Nebófjall,+ upp á Pisgatind+ sem er gegnt Jeríkó.+ Jehóva sýndi honum allt landið frá Gíleað til Dans,+  allt Naftalí og land Efraíms og Manasse, allt land Júda að hafinu í vestri,*+  Negeb+ og Jórdansvæðið,+ þar á meðal dalinn hjá Jeríkó, pálmaborginni, allt til Sóar.+  Jehóva sagði nú við hann: „Þetta er landið sem ég sór Abraham, Ísak og Jakobi þegar ég sagði: ‚Ég gef afkomendum þínum það.‘+ Ég hef leyft þér að sjá það með eigin augum en þú færð ekki að fara þangað yfir.“+  Síðan dó Móse þjónn Jehóva þar í Móabslandi eins og Jehóva hafði sagt.+  Hann jarðaði hann í dalnum í Móabslandi gegnt Bet Peór og enn þann dag í dag veit enginn hvar gröf hans er.+  Móse var 120 ára þegar hann dó.+ Hann var ekki orðinn sjóndapur og styrkur hans hafði ekki dvínað.  Ísraelsmenn grétu og syrgðu Móse á eyðisléttum Móabs í 30 daga.+ Þá var sorgartíminn á enda.  Jósúa Núnsson var fullur visku* því að Móse hafði lagt hendur yfir hann.+ Ísraelsmenn fóru nú að hlusta á hann og gerðu eins og Jehóva hafði gefið Móse fyrirmæli um.+ 10  En aldrei hefur komið fram annar eins spámaður í Ísrael og Móse+ sem Jehóva umgekkst augliti til auglitis.+ 11  Hann gerði öll táknin og kraftaverkin sem Jehóva hafði sent hann til að gera í Egyptalandi gegn faraó, öllum þjónum hans og landi,+ 12  og með sterkri hendi vann hann mikil máttarverk í augsýn alls Ísraels.+

Neðanmáls

Það er, Hafinu mikla, Miðjarðarhafi.
Eða „visku sem andi Guðs veitti honum“.