Jósúabók 19:1–51
19 Annar hluturinn+ sem kom upp var hlutur ættkvíslar Símeons+ og ættir hennar fengu erfðaland innan erfðalands Júda.+
2 Erfðaland þeirra var Beerseba+ ásamt Seba, Mólada,+
3 Hasar Súal,+ Bala, Esem,+
4 Eltólað,+ Betúl, Horma,
5 Siklag,+ Bet Markabót, Hasar Súsa,
6 Bet Lebaót+ og Sarúhen – 13 borgir ásamt tilheyrandi þorpum;
7 Aín, Rimmon, Eter og Asan+ – fjórar borgir ásamt tilheyrandi þorpum;
8 og sömuleiðis öll þorpin í kringum þessar borgir allt til Baalat Beer, það er Rama í suðri. Þetta var erfðaland ættanna í ættkvísl Símeons.
9 Erfðaland afkomenda Símeons var tekið af landi Júdamanna því að það var of stórt fyrir þá. Afkomendur Símeons fengu því eignarland á landsvæði þeirra.+
10 Þriðji hluturinn+ sem kom upp var hlutur afkomenda Sebúlons+ og landamæri ætta þeirra náðu til Saríd.
11 Landamæri þeirra lágu vestur til Marala, þaðan til Dabbeset og síðan að dalnum á móts við Jokneam.
12 Frá Saríd lágu þau í austur, í átt að sólarupprásinni, að mörkum Kislót Tabor, út að Daberat+ og síðan upp til Jafía.
13 Þaðan lágu þau áfram í austurátt að Gat Hefer,+ til Et Kasín, út að Rimmon og síðan til Nea.
14 Og í norðri sveigðu landamærin til Hannatón og enduðu í Jifta El-dal.
15 Auk þess fengu þeir Katat, Nahalal, Simron,+ Jidala og Betlehem+ – alls 12 borgir ásamt tilheyrandi þorpum.
16 Þetta var erfðaland ættanna í ættkvísl Sebúlons+ með borgum og tilheyrandi þorpum.
17 Fjórði hluturinn+ sem kom upp var hlutur afkomenda Íssakars+ og ætta þeirra.
18 Landamæri þeirra náðu til Jesreel,+ Kesúllót, Súnem,+
19 Hafaraím, Síón, Anaharat,
20 Rabbít, Kisjon, Ebes,
21 Remet, En Ganním,+ En Hadda og Bet Passes.
22 Þau lágu til Tabor,+ Sahasíma og Bet Semes og enduðu við Jórdan – 16 borgir ásamt tilheyrandi þorpum.
23 Þetta var erfðaland ættanna í ættkvísl Íssakars+ með borgum og tilheyrandi þorpum.
24 Fimmti hluturinn+ sem kom upp var hlutur ættanna í ættkvísl Assers.+
25 Landamæri þeirra lágu um Helkat,+ Halí, Beten, Aksaf,
26 Allammelek, Amead og Míseal. Þau lágu vestur til Karmel+ og Síhór Libnat,
27 og þau lágu til austurs að Bet Dagón og náðu að Sebúlon og Jifta El-dalnum í norðri, til Bet Emek og Negíel og þau lágu vinstra megin við Kabúl,
28 og til Ebron, Rehób, Hammon og Kana allt til Sídonar hinnar miklu.+
29 Landamærin beygðu síðan til Rama og lágu áfram til víggirtu borgarinnar Týrusar.+ Þaðan lágu þau til Hósa og enduðu á ströndinni í grennd við Aksíb,
30 Umma, Afek+ og Rehób+ – 22 borgir ásamt tilheyrandi þorpum.
31 Þetta var erfðaland ættanna í ættkvísl Assers+ með borgum og tilheyrandi þorpum.
32 Sjötti hluturinn+ sem kom upp var hlutur afkomenda Naftalí og ætta þeirra.
33 Landamæri þeirra lágu frá Helef, frá stóra trénu í Saananním,+ um Adamí Nekeb og Jabneel að Lakkúm og enduðu við Jórdan.
34 Í vestur lágu landamærin til Asnót Tabor og þaðan til Húkkók og þau náðu til Sebúlons í suðri, Assers í vestri og Júda* við Jórdan í austri.
35 Og víggirtu borgirnar voru Siddím, Ser, Hammat,+ Rakkat, Kinneret,
36 Adama, Rama, Hasór,+
37 Kedes,+ Edreí, En Hasór,
38 Jirón, Migdal El, Horem, Bet Anat og Bet Semes+ – 19 borgir ásamt tilheyrandi þorpum.
39 Þetta var erfðaland ættanna í ættkvísl Naftalí+ með borgum og tilheyrandi þorpum.
40 Sjöundi hluturinn+ sem kom upp var hlutur ættanna í ættkvísl Dans.+
41 Landamæri erfðalands þeirra lágu um Sórea,+ Estaól, Ír Semes,
42 Saalabbín,+ Ajalon,+ Jitla,
43 Elon, Timna,+ Ekron,+
44 Elteke, Gibbeton,+ Baalat,
45 Jehúd, Bene Berak, Gat Rimmon,+
46 Me Jarkón og Rakkon en þar lágu landamærin gegnt Joppe.+
47 Landsvæði Dans reyndist þó vera of lítið.+ Þeir fóru því og réðust á Lesem,+ unnu hana og felldu íbúana með sverði. Síðan slógu þeir eign sinni á hana og settust þar að. Og þeir breyttu nafni borgarinnar í Dan eftir forföður sínum.+
48 Þetta var erfðaland ættanna í ættkvísl Dans með borgum og tilheyrandi þorpum.
49 Þar með var lokið við að skipta landinu þannig að hver ættkvísl fékk sitt erfðaland. Síðan gáfu Ísraelsmenn Jósúa Núnssyni erfðaland sín á meðal.
50 Í samræmi við fyrirmæli Jehóva gáfu þeir honum borgina sem hann bað um, Timnat Sera+ í fjalllendi Efraíms, og hann endurreisti hana og settist þar að.
51 Þetta voru landsvæðin sem Eleasar prestur, Jósúa Núnsson og ættarhöfðingjarnir í ættkvíslum Ísraels úthlutuðu+ með hlutkesti í Síló+ frammi fyrir Jehóva við inngang samfundatjaldsins.+ Þar með luku þeir við að skipta landinu.
Neðanmáls
^ Hér er greinilega ekki átt við landsvæði Júdaættkvíslar heldur ættar manns frá Júda.