Markús segir frá 4:1–41

  • DÆMISÖGUR UM RÍKI GUÐS (1–34)

    • Akuryrkjumaðurinn (1–9)

    • Ástæða þess að Jesús kenndi með dæmisögum (10–12)

    • Útskýrir dæmisöguna um akuryrkjumanninn (13–20)

    • Lampi ekki settur undir körfu (21–23)

    • Sá mælir sem þið notið (24, 25)

    • Akuryrkjumaðurinn sem sefur (26–29)

    • Sinnepsfræið (30–32)

    • Segir margar dæmisögur (33, 34)

  • Jesús lægir storm (35–41)

4  Aftur fór hann að kenna við vatnið og mjög mikill mannfjöldi safnaðist að honum. Hann steig því um borð í bát og sat í honum skammt frá landi en allur mannfjöldinn var á ströndinni við vatnið.+  Hann fór að kenna fólkinu margt með dæmisögum+ og sagði við það:+  „Heyrið. Akuryrkjumaður gekk út að sá.+  Þegar hann sáði féll sumt af korninu meðfram veginum og fuglar komu og átu það.  Annað féll í grýtta jörð þar sem var lítill jarðvegur og það spratt fljótt því að jarðvegurinn var grunnur.+  En þegar sólin hækkaði á lofti skrælnaði það og dó vegna þess að það hafði litlar sem engar rætur.  Annað féll meðal þyrna og þyrnarnir uxu og kæfðu það og það bar engan ávöxt.+  En sumt féll í góðan jarðveg. Það óx og stækkaði og bar ávöxt – þrítugfaldan, sextugfaldan og hundraðfaldan.“+  Síðan bætti hann við: „Sá sem hefur eyru hann hlusti.“+ 10  Þegar Jesús var orðinn einn með þeim tólf og hinum lærisveinunum spurðu þeir hann út í dæmisögurnar.+ 11  Hann svaraði þeim: „Ykkur er gefið að skilja heilaga leyndardóma+ Guðsríkis en þeir sem eru fyrir utan fá allt í dæmisögum+ 12  til að þeir skynji ekki þó að þeir sjái og skilji ekki þó að þeir heyri. Þeir snúa ekki aftur til Guðs né hljóta fyrirgefningu.“+ 13  Hann sagði einnig við þá: „Fyrst þið skiljið ekki þessa dæmisögu hvernig getið þið þá skilið allar hinar dæmisögurnar? 14  Akuryrkjumaðurinn sáir orðinu.+ 15  Sumir eru eins og sáðkornið sem féll meðfram veginum. Um leið og þeir heyra orðið kemur Satan+ og tekur burt orðið sem var sáð í þá.+ 16  Eins er með það sem var sáð í grýtta jörð. Það eru þeir sem taka við orðinu með fögnuði um leið og þeir heyra það+ 17  en orðið nær ekki rótfestu í þeim. Þeir standa um tíma en falla um leið og erfiðleikar eða ofsóknir verða vegna orðsins. 18  Og sumu er sáð meðal þyrna. Þetta eru þeir sem heyra orðið+ 19  en áhyggjur+ daglegs lífs,* tál auðæfanna+ og löngunin í allt mögulegt annað+ þrengir að þeim og kæfir orðið svo að það ber ekki ávöxt. 20  En það sem var sáð í góðan jarðveg eru þeir sem hlusta á orðið, taka við því og bera ávöxt – þrítugfaldan, sextugfaldan og hundraðfaldan.“+ 21  Hann sagði líka við þá: „Lampi er ekki tekinn fram og settur undir körfu* eða undir rúm. Er hann ekki tekinn fram til að setja hann á ljósastand?+ 22  Ekkert er hulið sem verður ekki afhjúpað og ekkert er vandlega falið sem kemur ekki í ljós.+ 23  Hver sem hefur eyru hann hlusti.“+ 24  Hann sagði enn fremur við þá: „Takið eftir því sem þið heyrið.+ Ykkur verður mælt í sama mæli og þið mælið öðrum, já, og þið fáið meira en það 25  því að þeim sem hefur verður gefið meira,+ en frá þeim sem hefur ekki verður tekið jafnvel það litla sem hann hefur.“+ 26  Hann sagði einnig: „Ríki Guðs er eins og þegar maður sáir korni í jörð. 27  Hann sefur um nætur og fer á fætur á morgnana. Á meðan spírar kornið og plantan vex og stækkar en hann veit ekki hvernig. 28  Jörðin ber sjálfkrafa ávöxt stig af stigi, fyrst stilkinn, síðan axið og að lokum fullþroskað kornið í axinu. 29  En um leið og kornið er þroskað beitir hann sigðinni því að uppskerutíminn er hafinn.“ 30  Hann hélt áfram: „Við hvað getum við líkt ríki Guðs og með hvaða dæmisögu getum við lýst því? 31  Það er eins og sinnepsfræ sem er smæsta fræið á jörð þegar því er sáð í mold.+ 32  En eftir að því er sáð vex það og verður stærra en allar aðrar plöntur og greinarnar svo stórar að fuglar himins geta fundið sér samastað í skugganum.“ 33  Hann boðaði þeim orðið með mörgum dæmisögum+ af þessu tagi, allt eftir því sem þeir gátu skilið. 34  Hann talaði reyndar ekki til þeirra án dæmisagna en útskýrði allt fyrir lærisveinunum þegar þeir voru einir með honum.+ 35  Að kvöldi sama dags sagði Jesús við þá: „Förum yfir á ströndina hinum megin.“+ 36  Eftir að þeir höfðu sent mannfjöldann frá sér fóru þeir með Jesú á bátnum og aðrir bátar fylgdu honum.+ 37  Nú brast á mikill stormur og öldurnar gengu yfir bátinn svo að við lá að hann fyllti.+ 38  En Jesús lá í skutnum og svaf á koddanum.* Þeir vöktu hann og sögðu við hann: „Kennari, er þér sama um að við erum að farast?“ 39  Hann reis þá upp, hastaði á vindinn og sagði við vatnið: „Þegiðu! Stilltu þig!“+ Þá lægði vindinn og allt datt í dúnalogn. 40  Hann sagði við þá: „Af hverju eruð þið svona hræddir? Hafið þið enn enga trú?“ 41  En þeir voru logandi hræddir og sögðu hver við annan: „Hver er hann eiginlega? Jafnvel vindurinn og vatnið hlýða honum.“+

Neðanmáls

Eða „þessarar aldar“. Sjá orðaskýringar, „heimsskipan“.
Eða „mæliker“.
Eða „púðanum“.