Jesaja 19:1–25
19 Yfirlýsing gegn Egyptalandi:+
Jehóva kemur til Egyptalands ríðandi á hraðfara skýi.
Gagnslausir guðir Egyptalands skjálfa frammi fyrir honum+og hjörtu Egypta bráðna af ótta.
2 „Ég egni Egypta gegn Egyptumog þeir berjast hver við annan,hver maður við bróður sinn og nágranna,borg gegn borg og ríki gegn ríki.
3 Egyptar verða ráðvilltirog ég geri áform þeirra að engu.+
Þeir leita til gagnslausra guðanna,til særingamanna, miðla og spásagnarmanna.+
4 Ég sel Egypta í hendur hörðum húsbóndaog harðráður konungur mun ríkja yfir þeim,“+ segir hinn sanni Drottinn, Jehóva hersveitanna.
5 Vatnið í hafinu þornar uppog fljótið verður vatnslaust og þurrt.+
6 Ódaun leggur af fljótunum,Nílarskurðir Egyptalands tæmast og þorna.
Sefið og reyrinn visna.+
7 Gróðurinn meðfram Níl, við ósa Nílarfljóts,og sáðlandið við Níl+ skrælnar.+
Allt fýkur burt og hverfur.
8 Fiskimennirnir syrgja,þeir sem renna öngli í Níl kveinaog þeim fækkar sem leggja net í ána.
9 Þeir sem vinna úr kembdum hör+og þeir sem vefa hvítan dúk skammast sín.
10 Vefarar Egyptalands verða miður sín,allir launamenn syrgja.
11 Höfðingjar Sóan+ eru heimskir.
Vitrustu ráðgjafar faraós gefa óskynsamleg ráð.+
Hvernig getið þið sagt við faraó:
„Ég er kominn af vitru fólki,afkomandi fornra konunga“?
12 Hvar eru vitringar þínir núna?+
Láttu þá segja þér hvað Jehóva hersveitanna hefur ákveðið varðandi Egyptaland ef þeir vita það.
13 Höfðingjar Sóan hafa hegðað sér heimskulega,höfðingjar Nóf*+ látið blekkjast,ættarhöfðingjar Egyptalands hafa leitt fólk afvega.
14 Jehóva hefur ausið ringulreið yfir Egypta,+höfðingjarnir hafa leitt þá afvega á öllum sviðumeins og drukkinn mann sem slagar í spýju sinni.
15 Egyptar áorka engu,hvorki höfuð né hali, rótarangi né sef.*
16 Á þeim degi verða Egyptar eins og konur sem skjálfa af ótta því að Jehóva hersveitanna reiðir ógnandi hönd sína gegn landinu.+
17 Júdaland skýtur Egyptum skelk í bringu. Þeir skelfast um leið og minnst er á það vegna þess sem Jehóva hersveitanna hefur ákveðið varðandi þá.+
18 Þann dag verður mál Kanaans* talað í fimm borgum Egyptalands+ og þær sverja Jehóva hersveitanna hollustu. Ein borgin verður kölluð Niðurrifsborg.
19 Þann dag verður altari handa Jehóva í miðju Egyptalandi og stólpi til heiðurs Jehóva við landamærin.
20 Það verður til tákns og vitnisburðar um Jehóva hersveitanna í Egyptalandi. Fólk mun hrópa til Jehóva undan kúgurunum og hann sendir þá mikinn frelsara sem frelsar það.
21 Jehóva mun opinbera sig Egyptum og Egyptar kynnast Jehóva á þeim degi. Þeir bera fram fórnir og gjafir og þeir vinna Jehóva heit og efna það.
22 Jehóva slær Egypta,+ slær þá og læknar síðan. Þeir snúa aftur til Jehóva og hann heyrir bænir þeirra og læknar þá.
23 Þann dag verður greiður vegur+ frá Egyptalandi til Assýríu. Assýringar koma þá til Egyptalands og Egyptar til Assýríu, og Egyptar munu þjóna Guði ásamt Assýringum.
24 Á þeim degi sameinast Ísrael Egyptalandi og Assýríu+ en það verður til blessunar fyrir jörðina
25 því að þá hefur Jehóva hersveitanna blessað fólkið og sagt: „Blessuð sé þjóð mín, Egyptar, verk handa minna, Assýringar, og arfleifð mín, Ísrael.“+