Jesaja 23:1–18

  • Yfirlýsing um Týrus (1–18)

23  Yfirlýsing um Týrus:+ Kveinið, Tarsisskip!+ Höfnin er eyðilögð, ekki er hægt að leggjast þar að. Fréttin af því hefur borist frá Kittím.+   Verið hljóð, þið sem búið á strandlengjunni. Kaupmenn frá Sídon+ sem sigla um hafið hafa safnað til þín auðæfum.   Korn frá Síkor*+ fór víða um höf,uppskera Nílar, tekjulind Týrusar,og þjóðirnar högnuðust á því.+   Hvílík skömm, Sídon, þú virkið við hafið,því að hafið hefur sagt: „Ég hef ekki haft fæðingarhríðir né eignast barnog ekki heldur alið upp syni eða dætur.“*+   Menn verða angistarfullir þegar þeir frétta af Týrus+eins og þegar þeir fréttu af Egyptalandi.+   Flýið til Tarsis! Kveinið, þið sem búið á strandlengjunni!   Er þetta borgin sem hefur fagnað frá fornri tíð, frá upphafi? Íbúar hennar settust að í fjarlægum löndum.   Hver hefur ákveðið þetta um Týrus,hana sem krýndi konunga? Kaupmenn hennar voru höfðingjarog verslunarmennirnir virtir um alla jörð.+   Jehóva hersveitanna hefur ákveðið þettatil að kæfa stolt hennar yfir eigin fegurðog auðmýkja alla sem hlutu heiður á jörð.+ 10  Breiddu úr þér eins og Nílarfljót, þú Tarsisdóttir. Enginn staður er lengur til fyrir skipasmíðar.*+ 11  Guð hefur rétt hönd sína út yfir hafiðog látið konungsríki skjálfa. Jehóva hefur skipað að virkjum Fönikíu verði eytt.+ 12  Hann segir: „Þú skalt ekki fagna lengur,+þú kúgaða mey, Sídonardóttir. Farðu yfir til Kittím.+ Þú færð þó enga hvíld þar heldur.“ 13  Sjáið land Kaldea.+ Það voru Kaldear en ekki Assýringar+sem gerðu hana* að aðsetri eyðimerkurdýra. Þeir hafa reist umsátursturna,rifið niður virkisturna hennar+og gert hana að molnandi rústum. 14  Kveinið, Tarsisskip,því að virki ykkar hefur verið eyðilagt.+ 15  Þann dag mun Týrus gleymast í 70 ár,+ um æviskeið* eins konungs. Þegar 70 árin eru liðin fer fyrir Týrus eins og segir í ljóðinu um vændiskonu: 16  „Taktu hörpu, gleymda vændiskona, og gakktu um borgina. Leiktu fallega á hörpunaog syngdu mörg lögsvo að munað verði eftir þér.“ 17  Þegar 70 árin eru liðin gefur Jehóva gaum að Týrus og hún fer að afla sér tekna á ný og stunda vændi með öllum ríkjum heims. 18  En hagnaður hennar og laun verða helguð Jehóva. Þau verða hvorki geymd né lögð fyrir heldur gefin þeim sem búa frammi fyrir Jehóva svo að þeir geti borðað sig sadda og gengið í glæsilegum fötum.+

Neðanmáls

Síkor var ein af kvíslum Nílar.
Orðrétt „meyjar“.
Eða hugsanl. „Engin höfn er lengur til“.
Hugsanlega er átt við Týrus.
Orðrétt „daga“.