Jesaja 3:1–26
3 Hinn sanni Drottinn, Jehóva hersveitanna,sviptir Jerúsalem og Júda öllum stuðningi og vistum,já, öllu brauði og vatni,+
2 hermanni og kappa,dómara og spámanni,+ spásagnarmanni og öldungi,
3 fimmtíu manna höfðingja,+ tignarmanni og ráðgjafa,galdramanni og særingamanni.+
4 Ég geri drengi að höfðingjum þeirraog duttlungafullir* menn stjórna þeim.
5 Menn kúga hver annan,hver og einn náunga sinn.+
Unglingur ræðst á öldunginnog hinir lítils virtu ögra virtum mönnum.+
6 Maður grípur í bróður sinn heima hjá föður sínum og segir:
„Þú átt yfirhöfn – vertu leiðtogi okkar.
Taktu völdin yfir þessum rústum.“
7 En hann mótmælir og segir:
„Ég ætla ekki að binda um sár ykkar.*
Ég á hvorki mat né fatnað í húsi mínu.
Gerið mig ekki að leiðtoga fólksins.“
8 Jerúsalem hefur hrasaðog Júda falliðþví að íbúarnir rísa gegn Jehóva í orði og verki,þeir eru þverúðugir þótt hann sé nærverandi í dýrð sinni.*+
9 Svipur þeirra vitnar gegn þeimog þeir básúna synd sína eins og Sódóma,+þeir reyna ekki að fela hana.
Ógæfan kemur yfir þá og það er sjálfum þeim að kenna!
10 Segið hinum réttlátu að þeim farnist vel.
Þeim verður launað fyrir verk sín.*+
11 Illa fer fyrir hinum vonda,hörmungar koma yfir hannþví að hann fær að upplifa það sama og hann gerði öðrum.
12 Yfirmenn fólks míns eru harðneskjulegir,konur drottna yfir fólkinu.
Þjóð mín, leiðtogar þínir leiða þig afvegaog gera vegi þína ógreinanlega.+
13 Jehóva gengur fram til að ákæra,hann stendur upp til að fella dóm yfir þjóðum.
14 Jehóva dæmir öldunga og höfðingja þjóðar sinnar.
„Þið hafið brennt víngarðinnog þýfið frá hinum fátæku er heima hjá ykkur.+
15 Hvernig dirfist þið að gera út af við þjóð mínaog troða niður hina fátæku?“+ segir alvaldur Drottinn, Jehóva hersveitanna.
16 Jehóva segir: „Dætur Síonar eru hrokafullar,ganga hnarreistar,daðra með augunum og tipla umtil að láta klingja í ökklaböndunum.
17 Jehóva lætur því höfuð Síonardætra steypast út í hrúðri,Jehóva gerir þær sköllóttar.+
18 Á þeim degi tekur Jehóva frá þeim skart þeirra:
ökklahringina, ennisböndin og skrautmánana,+
19 eyrnalokka þeirra, armbönd og slæður,
20 höfuðbúnað, ökklakeðjur og brjóstborða,ilmvatnsglös* og verndargripi,*
21 hringa og nefhringi,
22 hátíðarfatnað, kjóla, skikkjur og veski,
23 handspegla+ þeirra og línklæðnað,*vefjarhetti og sjöl.
24 Ódaunn kemur í stað balsamilms,+reipi í stað beltis,skalli+ í stað fallegrar hárgreiðslu,hærusekkur+ í stað sparifataog brennimerki í stað fegurðar.
25 Menn þínir falla fyrir sverðiog hermenn þínir í stríði.+
26 Borgarhlið Síonar munu harma og syrgja+og hún situr yfirgefin á jörðinni.“+
Neðanmáls
^ Eða „hvikulir“.
^ Eða „vera læknir ykkar“.
^ Orðrétt „frammi fyrir dýrðaraugum hans“.
^ Orðrétt „Þeir borða ávöxt verka sinna“.
^ Orðrétt „sálarhús“.
^ Eða „suðandi skrautkuðunga“.
^ Eða „nærföt“.