HALTU VÖKU ÞINNI
Hvað er orðið um mannasiði? – Hvað segir Biblían?
Mannasiðir eru á undanhaldi. Dónalegir sjúklingar öskra á lækna, ruddalegir kúnnar á veitingastöðum hella sér yfir þjónana, flugdólgar ráðast á flugfreyjur og -þjóna, óþekk börn hæðast að, ógna og ráðast á kennara sína og sumir stjórnmálamenn valda hneyksli með hegðun sinni á meðan aðrir stjórnmálamenn hrósa sér af eigin siðsemi.
Biblían er traustur leiðarvísir um góða hegðun. Hún útskýrir líka hvers vegna fólk skortir mannasiði nú á dögum.
Hvað er orðið um mannasiði?
Mannasiðir – góð, siðsöm og boðleg hegðun – eru greinilega á undanhaldi um allan heim.
Samkvæmt nýlegri skoðanakönnun Gallup sögðu Bandaríkjamenn siðferðisgildi þar í landi vera orðin lægri en nokkurn tíma áður á síðastliðnum 22 árum.
Í annarri könnun, sem yfir 32.000 manns í 28 löndum tóku þátt í, sögðust 65 prósent aldrei hafa séð eins mikinn skort á almennum mannasiðum.
Biblían sagði fyrir um þá hegðun sem við sjáum nú á dögum.
‚Á síðustu dögum verða erfiðir tímar. Menn verða eigingjarnir, elska peninga, verða montnir, hrokafullir, lastmálir, óhlýðnir foreldrum, vanþakklátir, kærleikslausir og hafa enga sjálfstjórn.‘ – 2. Tímóteusarbréf 3:1–3.
Lestu greinina „Sagði Biblían fyrir um hugsunarhátt og hegðun fólks á okkar tímum?“ til að fræðast meira um hvernig þessi spádómur er að uppfyllast nú á dögum.
Traustur leiðarvísir um góða hegðun
Í heimi þar sem góð hegðun fer minnkandi hefur milljónum manna fundist Biblían frábær leiðarvísir. Ráð hennar í siðferðismálum eru „alltaf áreiðanleg, bæði nú og að eilífu“. (Sálmur 111:8) Skoðum nokkur dæmi:
Biblían segir: „Allt sem þið viljið að aðrir geri fyrir ykkur skuluð þið gera fyrir þá.“ – Matteus 7:12.
Hvað þýðir það? Við ættum að koma fram við aðra af virðingu og vinsemd alveg eins og við viljum að komið sé fram við okkur.
Biblían segir: „Núna þegar þið eruð hætt öllum blekkingum skuluð þið öll tala sannleika við náungann.“ – Efesusbréfið 4:25.
Hvað þýðir það? Við ættum að vera heiðarleg í öllu sem við segjum og gerum.
Nánari upplýsingar um þetta málefni er að finna í …
tölublaði Varðturnsins sem heitir „Rétt og rangt – leiðarvísir sem hægt er að treysta“.
greininni „Umburðarlyndi – hvernig getur Biblían hjálpað?“