LÍF OKKAR Í KRISTINNI ÞJÓNUSTU
Varðveittu samband þitt við Jehóva
Vottar Jehóva njóta einstakrar blessunar. Sem vígðir, skírðir vottar hlúum við að sambandi okkar við Jehóva Guð. Hann hefur dregið okkur til sín fyrir milligöngu sonar síns. (Jóh 6:44) Hann hlustar á bænir okkar. – Sl 34:16.
Hvernig getum við varðveitt dýrmætt samband okkar við Guð? Meðal annars með því að forðast það illa sem Ísraelsmenn gerðu. Stuttu eftir að Jehóva gerði sáttmála við Ísraelsmenn bjuggu þeir til gullkálf og fóru að dýrka skurðgoð. (2Mó 32:7, 8; 1Kor 10:7, 11, 14) Við gætum spurt okkur: Hvernig bregst ég við freistingum? Sýni ég með verkum mínum að sambandið við Jehóva er mér dýrmætt? Ef við elskum himneskan föður okkar heitt verður auðveldara fyrir okkur að flýja það sem hann hatar. – Sl 97:10.
HORFÐU Á MYNDSKEIÐIÐ VARÐVEITTU SAMBAND ÞITT VIÐ JEHÓVA (Kól. 3:5) OG SVARAÐU SÍÐAN EFTIRFARANDI SPURNINGUM:
-
Hvað er ágirnd?
-
Hvers vegna ættum við að forðast græðgi og skurðgoðadýrkun?
-
Hvernig tengjast hjúskaparbrot skurðgoðadýrkun?
-
Hvers vegna verða einkum þeir sem hafa ábyrgð innan safnaðarins að annast þarfir maka síns?