Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

LÍF OKKAR Í KRISTINNI ÞJÓNUSTU

Tökumst á við fjárhagserfiðleika af öryggi

Tökumst á við fjárhagserfiðleika af öryggi

Lífið er afar krefjandi á hinum síðustu dögum. Erfiðleikarnir magnast eftir því sem nær dregur endalokum þessa heims. Við gætum þurft að líða ýmiss konar skort. (Hab 3:16–18) Hvað hjálpar okkur að takast á við fjárhagserfiðleika af öryggi? Við verðum að halda áfram að treysta á Jehóva, Guð okkar. Hann hefur lofað að annast þjóna sína og getur séð fyrir okkur við hvaða aðstæður sem er. – Sl 37:18, 19; Heb 13:5, 6.

Það sem þú getur gert:

  • Leitaðu til Jehóva í bæn og biddu hann um leiðsögn, visku og stuðning. – Sl 62:8.

  • Vertu fús að taka að þér starf sem þú hefur ekki unnið við áður. – g10-E 1.10. 8, 9, rammar.

  • Temdu þér góðar andlegar venjur svo sem að lesa daglega í Biblíunni, sækja safnaðarsamkomur og boða trúna.

HORFÐU Á MYNDSKEIÐIÐ BYGGIÐ HÚS SEM STENDUR - „LÁTIÐ YKKUR NÆGJA ÞAÐ SEM ÞIÐ HAFIГ OG SVARAÐU SÍÐAN EFTIRFARANDI SPURNINGUM:

  • Hvaða áskoranir hafa sumar fjölskyldur þurft að takast á við?

  • Hvað er allra mikilvægast í lífinu?

  • Hvernig getum við hjálpað þeim sem eru að takast á við fjárhagserfiðleika?