Hverju svarar Biblían?
Lifum við á „síðustu dögum“?
Hvað myndir þú segja?
Já.
Nei.
Það má vera.
Hvað segir Biblían?
„Á síðustu dögum munu koma örðugar tíðir.“ (2. Tímóteusarbréf 3:1) Biblíuspádómar og heimsástandið sýna að við lifum á „síðustu dögum“.
Fleiri upplýsingar úr Biblíunni
Stríð, hungursneyðir, jarðskjálftar og drepsóttir áttu að einkenna síðustu daga. – Matteus 24:3, 7; Lúkas 21:11.
Á síðustu dögum yrði alvarlegt siðferðishrun á vettvangi trúmála og í þjóðfélaginu almennt. – 2. Tímóteusarbréf 3:2-5.
Hvaða framtíð bíður mannkynsins?
Sumir halda ... að síðustu dagar endi á því að jörðin farist og allir sem á henni eru en aðrir vonast þó til að ástandið í heiminum eigi eftir að lagast. Hvað heldur þú?
Hvað segir Biblían?
„Réttlátir fá landið til eignar og búa þar ævinlega.“ – Sálmur 37:29.
Fleiri upplýsingar úr Biblíunni
Síðustu dögum lýkur með því að illskunni verður eytt. – 1. Jóhannesarbréf 2:17.
Jörðinni verður breytt í paradís. – Jesaja 35:1, 6.