„Til komi þitt ríki“ – bæn milljóna manna
Hefur þú beðið um að ríki Guðs komi? Milljónir manna hafa í aldaraðir endurtekið þessi orð: „Til komi þitt ríki.“ Hvers vegna biður fólk þannig? Vegna þess að Jesús sagði fylgjendum sínum að biðja um að ríki Guðs komi.
Til að byrja með skildu fylgjendur Jesú ekki allt sem hann sagði um ríki Guðs. Þeir spurðu hann eitt sinn: „Drottinn, ætlarðu að endurreisa Ísraelsríki núna?“ Það kom þeim eflaust á óvart að Jesús skyldi ekki gefa þeim nákvæmt svar. (Postulasagan 1:6, 7) Þýðir það að við getum ekki fengið svör við því hvað ríki Guðs er og hvenær það kemur? Alls ekki.
Í þessu tölublaði Varðturnsins er leitað svara við eftirfarandi spurningum:
Hvers vegna þurfum við á ríki Guðs að halda?
Hver er konungur í ríki Guðs?
Hvenær mun ríki Guðs fara með stjórn yfir jörðinni?
Hverju kemur ríki Guðs til leiðar?
Hvers vegna ættum við að styðja ríki Guðs núna?
Hvað er ríki Guðs?