Hverju svarar Biblían?
Verður einhvern tíma friður um allan heim?
Hvað myndir þú segja?
Já.
Nei.
Kannski.
Hvað segir Biblían?
Undir stjórn Jesú Krists verður „friður og farsæld uns tunglið er ekki framar til“ – það er að segja að eilífu. – Sálmur 72:7.
Frekari upplýsingar úr Biblíunni
Vondir menn verða afmáðir af jörðinni svo að hinir góðu fái að „gleðjast yfir miklu gengi“. – Sálmur 37:10, 11.
Guð ætlar að binda enda á öll stríð. – Sálmur 46:9, 10.
Er hægt að öðlast hugarfrið núna?
Sumir telja ... að það sé ekki hægt að öðlast sannan hugarfrið á meðan heimurinn er fullur af þjáningum og óréttlæti. Hver er þín skoðun?
Hvað segir Biblían?
Þeir sem eiga náið samband við Guð geta nú þegar notið ,friðar Guðs, sem er æðri öllum skilningi‘. – Filippíbréfið 4:6, 7.
Frekari upplýsingar úr Biblíunni
Guð lofar að afmá allar þjáningar og óréttlæti. Hann gerir „alla hluti nýja“. – Opinberunarbókin 21:4, 5.
Við getum átt hugarfrið ef við fullnægjum andlegum þörfum okkar. – Lúkas 11:28.