Söngur 117
Þiggjum kennslu Jehóva
1. Komið þið fagnandi, kynnist Guði betur.
Komið, því lífsvatnið hægt er að fá.
Jehóva hefur hungruðum gefið
heilnæmu kennsluna orðinu frá.
2. Vanrækjum aldrei að safnast hingað saman.
Samkomur kenna Guðs réttlætisleið.
Hér er Guðs andi, hér okkar vinir,
hér verður gangan í ljósinu greið.
3. Lofgjörðir mælir hver lærisveinatunga.
Lofsöngur er þeirra ómþýða lag.
Ásamt Guðs þjónum samkomur sækjum,
sameinuð alls staðar verum hvern dag.
(Sjá einnig Hebr. 10:24, 25; Opinb. 22:17.)