Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Söngur 89

Jehóva hvetur: „Vertu vitur, sonur minn“

Jehóva hvetur: „Vertu vitur, sonur minn“

(Orðskviðirnir 27:11)

1. Ó, gef mér þitt hjarta sem ungur berð þín ár.

Þeim orði get svarað sem dregur að mér dár.

Ef fúslega trúan og sannan sýnir þig

mun sjást hvar sem er að þú lifir fyrir mig.

(VIÐLAG)

Minn sonur kær, þú dýrmæt dóttir,

þinn dugur gleður hjarta mitt,

í hreinleik þú þjónir af hjarta,

mig ávallt heiðri allt líf þitt.

2. Með ánægju gefðu mér allt það sem þú átt,

því þó að þú hrasir ég gef þér aukinn mátt.

Þótt sumir þér bregðist og svíki orð sín hér,

þá sefi það hugann hve annt mér um þig er.

(VIÐLAG)

Minn sonur kær, þú dýrmæt dóttir,

þinn dugur gleður hjarta mitt,

í hreinleik þú þjónir af hjarta,

mig ávallt heiðri allt líf þitt.