Söngur 96
Leitum að hinum verðugu
1. Að kunngera Guðsríki Kristur gekk fremst
og kenndi þá aðferð við störf:
,Á ferð ykkar leitið og finnið það fólk
sem er fúst og í andlegri þörf.
Er ókunnu húsi þið árnið svo góðs
munu einlægir frið ykkar fá.
En hlusti fólk ekki og hafni mjög stíft
rykið hristið af fótunum þá.‘
2. Er hlusta menn á þig þeir hlýða á Krist
og hjartað Guð opna mun þá.
Ef vonina eilífu vekjum hjá þeim
fylgir viljinn að trú sína tjá.
Og óttastu aldrei hvað segja þú átt,
orðin lagt getur Guð þér í munn.
Þá svarið er ljúflegt og saltinu stráð
svo að sannleiksorð Guðs verða kunn.
(Sjá einnig Post. 13:48; 16:14; Kól. 4:6.)