Söngur 58
Vígslubæn mín
1. Þiggðu hjarta mitt sem má
meta visku himni frá.
Þiggðu huga minn og mátt,
mun ég þjóna þér í sátt.
2. Þiggðu hvora hönd og fót,
haldi þau öll boð þín fljót.
Þiggðu, Guð minn, sigursöng
sem ég flyt þér dægrin löng.
3. Þiggðu líf mitt, láttu það
lagast þínum vilja að.
Þiggðu mig og megi ég
mikla þig á sérhvern veg.
(Sjá einnig Sálm. 40:9; Jóh. 8:29; 2. Kor. 10:5.)