SÖNGUR 145
Loforð Guðs um paradís
-
1. Guð lofar paradís á jörðu,
völd Kristur fær um þúsund ár.
Þá mun hann afmá synd og misgjörð
og dauðans vald og þerra tár.
(VIÐLAG)
Guðs paradís mun verða hér,
með trúarsjón hvert okkar sér
að loforð Guðs uppfyllast brátt
því sonur hans á til þess mátt.
-
2. Brátt hér á jörð Guðs vilji verður,
úr gröfum mannkyn allt þá rís.
Orð Jesú rætast er hann sagði:
„Ég verð með þér í paradís.“
(VIÐLAG)
Guðs paradís mun verða hér,
með trúarsjón hvert okkar sér
að loforð Guðs uppfyllast brátt
því sonur hans á til þess mátt.
-
3. Nú okkar bíður fögur framtíð
því Kristur ríkir himni á.
Við dag hvern föður okkar lofum
og syngjum ljóð sem þakkir tjá.
(VIÐLAG)
Guðs paradís mun verða hér,
með trúarsjón hvert okkar sér
að loforð Guðs uppfyllast brátt
því sonur hans á til þess mátt.
(Sjá einnig Matt. 5:5; 6:10; Jóh. 5:28, 29.)