Minningarhátíð um dauða Jesú
Laugardaginn 12. apríl 2025
Vottar Jehóva minnast dauða Jesú einu sinni á ári í samræmi við fyrirmæli hans: „Gerið þetta til minningar um mig.“ – Lúkas 22:19.
Þér er boðið.
Spurningar og svör
Hvað er dagskráin löng?
Hún er um það bil ein klukkustund.
Hvar verður minningarhátíðin haldin?
Hafðu samband við Votta Jehóva til að fá nánari upplýsingar.
Kostar eitthvað inn?
Aðgangur er ókeypis.
Verða samskot?
Nei.
Eru einhverjar reglur varðandi klæðnað?
Það eru engar kröfur um klæðaburð en vottar Jehóva reyna að fylgja leiðbeiningum Biblíunnar um að klæða sig á þann hátt sem endurspeglar virðingu og hógværð. (1. Tímóteusarbréf 2:9) Þú þarft ekki að vera í dýrum eða formlegum klæðnaði.
Hvernig fer minningarhátíðin fram?
Samkoman hefst og henni lýkur með söng og bæn. Vottur Jehóva fer með bænina. Flutt verður biblíutengd ræða sem fjallar um hvað dauði Jesú hefur mikla þýðingu og hvernig við getum notið góðs af því sem Guð og Jesús Kristur hafa gert fyrir okkur.
Nánari upplýsingar er að finna í greininni „Hvers vegna halda Vottar Jehóva kvöldmáltíð Drottins á annan hátt en önnur trúarbrögð?“
Hvenær verða næstu minningarhátíðar haldnar?
2025: Laugardaginn 12. apríl
2026: Fimmtudaginn 2. apríl